Smærri útgerðir fá meiri afslátt af veiðigjaldi en áður var gert ráð fyrir, og veiðigjald af makríl hækkar minna en áður hafði verið gert ráð fyrir, samkvæmt breytingartillögu sem var samþykkt í atvinnuveganefnd Alþingis í morgun. RÚV sagði frá þessu.
Smærri útgerðir fá meiri afslátt af veiðigjaldi en áður var gert ráð fyrir, og veiðigjald af makríl hækkar minna en ella, samkvæmt breytingartillögu sem var samþykkt í atvinnuveganefnd Alþingis í morgun. Nefndin hefur nú afgreitt frumvarpið og getur það farið til annarrar umræðu.
Helstu breytingarnar frá upphaflegu frumvarpi eru þær að afsláttur sem útgerðir fá af fyrstu veiddu tonnum hverrar fisktegundar er aukinn fyrir þorsk og ýsu.
Þannig fá útgerðir 65% afslátt af fyrstu 15 milljónum króna í veiðigjöldum þorsks og ýsu, en 45% fyrir næstu 55 milljónir króna. Áður átti aðeins að veita 40% afslátt af fyrstu 50 milljónunum. Þessi breyting mun lækka veiðigjöld allra sem stunda veiðar á þorsk og ýsu, en vega þyngra eftir því sem útgerðin er minni.
Jafnframt var samþykkt að við útreikning á veiðigjaldi makríls verði ekki stuðst við verð á norskum fiskmarkaði, heldur 80% af norska verðinu. Í greinargerð segir að með þessu sé verið að koma til móts við þau sjónarmið að makríll við Íslandsstrendur sé ekki jafnverðmætur og sá norski. Það er í samræmi við sjónarmið Norges Sildesalgslag sem sendi nýlega SFS umsögn um málið sem sagt var frá í Fiskifréttum á miðvikudag.