„Fyrsti skammtur seiða, sem nú er í stórseiðahúsinu í Viðlagafjöru, aðlagast nýju umhverfi sínu mjög vel og má í raun segja að starfsemin þar sé hafin á fullum krafti,“ segir í færslu á vefsíðu Laxeyjar.
Þar kemur fram að í byrjun desember hafi skammtur tvö verið færður frá RAS 2 yfir í RAS 3 og undanfarna daga hafi hann verið bólusettur. NORVACC sem sérhæfi sig í bólusetningu seiða hafi annast verkefnið.
Aðlagast vel í stórseiðahúsinu
„Jafnvel í landeldi gegnir bólusetning mikilvægu hlutverki við að vernda heilsu fiska, tryggja góðan rekstur og styðja við sjálfbærni. Bæði flutningur og bólusetning gengu mjög vel,“ segir á laxey.is.
Næstu skref í seiðastöðinni eru sögð þau að hreinsa og undirbúa RAS 2 fyrir næsta skammt, sem nú sé í RAS 1. Þegar sá skammtur verði fluttur áfram verði RAS 1 þrifinn og undirbúinn fyrir nýjan skammt. Þannig sé hringrás viðhaldið í seiðastöðinni.
„Fyrsti skammtur seiða, sem nú er í stórseiðahúsinu í Viðlagafjöru, aðlagast nýju umhverfi sínu mjög vel og má í raun segja að starfsemin þar sé hafin á fullum krafti. Skammtur tvö verður fluttur frá seiðastöðinni til stórseiðahússins í Viðlagafjöru á nýju ári og mun þá ganga í gegnum sama aðlögunarferli. Það má svo sannarlega segja að landeldi sé hafið í Vestmannaeyjum,“ segir að lokum á laxey.is.