Brottkast þorsks var 659 tonn árið 2010 eða 0,43% aflönduðum afla, og er það næstlægsta hlutfall tímabilið 2001-2010. Brottkast ýsu var 727 tonn eða 1,17% af lönduðum afla 2010, og er það einnig næstlægsta brottkastshlutfall ýsu 2001-2010.

Á tímabilinu 2001-2010 var meðalbrottkast þorsks sem hlutfall af lönduðum afla hæst í dragnótaveiðum (2,70%) og netaveiðum (1,34%), en minna í botnvörpuveiðum (0,77%) og línuveiðum (0,38%). Meðalbrottkast ýsu 2001-2010 var mest í dragnótaveiðum (4,30%) og botnvörpuveiðum (2,47%) en minnst í línuveiðum (0,40%).

Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar.

Meðalbrottkast þorsks 2001-2010 í öll veiðarfæri var 0,90% af lönduðum afla (1680 tonn) en brottkast ýsu 2,02% (1488 tonn). Brottkast þorsks og ýsu hefur verið minna síðustu þrjú til fjögur árin en fyrri ár tímabilsins 2001 til 2010.