Alþjóðlegt samstarf hefur aukist jafnt og þétt í starfsemi Matís frá því að fyrirtækið tók til starfa í janúar 2007. Á þessum tíma hefur Matís m.a. átt í samstarfi við Norræna nýsköpunarsjóðinn (e. Nordic Innovation), PepsiCo., alþjóðlega sjóði um þróunaraðstoð, erlenda háskóla og Evrópusambandið, m.a. varðandi hvernig bæta mætti fiskveiðistjórnun sambandsins (EcoFishMan), svo fátt eitt sé nefnt.
Með starfsemi Matís hefur byggst upp þekking og reynsla sem þykir orðin eftirsóknarverð og sem dæmi má nefna að s.l. föstudag komu stjórnendur Perennia í Nova Scotia og Matís sér saman um viljayfirlýsingu um samstarf. Í þessu samstarfi felst m.a. að vísindamenn Matís veita Perennia ráðgjöf á sviði fiskvinnslu og málefni er varða bætta nýtingu hráefna úr hafinu. Samkomulagið náðist í stuttri heimsókn sendinefndar frá Nova Scotia sem naut forystu Keith Colwell sjávarútvegsráðherra Nova Scotia.