Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, svo kallað marsrall, hófst í vikunni sem leið og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fjögur skip taka þátt í verkefninu að þessu sinni; togararnir Ljósafell SU og Bjartur NK og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson. Alls verður togað á um 600 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið eins og sjá má á þessari mynd.
Marsrallið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1985. Helstu markmið eru að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldurssamsetningu, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið. Einnig er safnað sýnum vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengandi efnum í sjávarfangi. Helmingur togstöðva var í upphafi staðsettur af reyndum skipstjórum en öðrum stöðvum var dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti. Undanfarin ár hafa skipstjórar einnig sett út aukastöðvar þar sem von er um þorsk í útköntum, aðallega fyrir norðvestan og norðaustan land.
Úrvinnsla mælinganna og aldursgreiningar fara fram í lok mars og helstu niðurstöður verða kynntar í apríl.
Fylgjast má með ferðum rallskipanna hér