Landeldisfyrirtækið Laxey í Vestmannaeyjum og Marel hafa skrifað undir samning um afhendingu á Marel vinnslu- og hugbúnaði fyrir væntanlegt sláturhús Laxeyjar fyrir landeldislax.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Laxey þar sem segir að með samningnum taki fyrirtækið stórt skref. Laxey stefni á að framleiða 32 þúsund tonn af laxi á ári.

Ein mest vaxandi grein matvælaiðnaðarins

„Byggð hefur verið hátæknivædd seiðastöð sem er komin í fulla starfsemi og senn verður fyrsta áfangi áframeldisins í Viðlagafjöru fullkláraður. Fyrsti seiðaskammtur var einmitt fluttur í áframeldið í lok síðasta árs og er fyrsta slátrun áætluð haustið 2025. JBT Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir fiskvinnslu,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að landeldi sé ein mest vaxandi grein matvælaiðnaðarins. Þar skipti öflugur búnaður miklu máli til að uppfylla vaxandi kröfur markaðarins um sjálfbærni og hámarksnýtingu.

Lykilatriði í sjálfbærum landeldislausnum

„Með nýju lausninni frá Marel fær LAXEY bæði nákvæma stærðarflokkun og tengingu við stafrænar lausnir Marel sem hámarka rekstrarhagkvæmni. Samningurinn snýr að Smartline-flokkara og AXIN hugbúnaði Marel sem er notaður í fiskvinnslum um allan heim. Með AXIN hugbúnaðinum getur starfsfólk LAXEY stýrt vinnsluferlinu eftir upplýsingum sem kerfið aflar í rauntíma. Gerir hugbúnaðurinn starfsfólkinu þannig kleift að haga framleiðslunni á sem hagkvæmastan máta og jafnframt að bregðast skjótt við vandamálum sem kunna að koma upp. Lausnin mun auka nákvæmni í stærðarflokkun og styðja við rekjanleika, gæði og framleiðsluhagkvæmni en þetta eru allt lykilatriði í stefnu LAXEY um að vera leiðandi í sjálfbærum landeldislausnum,“ segir í tilkynningunni.

Yfirsýn og rekjanleiki skipti gríðarlegu máli

„Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að hafa skýra yfirsýn yfir vinnsluna, góðan rekjanleika og geta þannig tryggt hagkvæmni í gegnum öll stig vinnslunnar,” segir síðan Kristmann Kristmannsson, verkefnastjóri vinnslu og innkaupa hjá Laxey.

Enn fremur segir að Smartline-flokkarinn frá Marel veiti Laxey möguleika á að stærðarflokka lax með mikilli nákvæmni og hraða.

Öll gögn um framleiðslu rekjanleg í rauntíma.

„Með AXIN hugbúnaðinum er tryggt að öll gögn um framleiðslu séu rekjanleg í rauntíma. Þetta gefur fyrirtækinu innsýn til að hámarka nýtingu og tryggja matvælaöryggi,“ segir áfram.

„Viðskiptavinir okkar vilja áreiðanleg gögn, hágæða afurðir og tækni sem getur spáð fyrir um stöðu framleiðslulínunnar,“ er haft eftir Skúla Sigurðssyni, framkvæmdastjóra fisks hjá Marel. „Við erum stolt af því að vinna með LAXEY í þessu verkefni og styðja við þeirra vegferð við að setja ný viðmið í fiskeldi,“ segir hann einnig.