Makrílvinnsla hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum hófst fyrir um hálfum mánuði. En nú ríkja þar breyttir tímar með nýjum framleiðslutækjum og á fyrstu vikunum var ný flokkunarstöð „keyrð upp“ og ný pökkunarlína sömuleiðis í nýju vinnslu- og frystihúsi.
Frá þessu segir á heimasíðu fyrirtækisins.
„Mikil breyting, já svo sannarlega,“ segir Sindri Viðarsson sviðstjóri hjá Vinnslustöðinni, í fréttinni. „Skilvirkur og góður gangur í framleiðslunni, meiri afköst og betri vara. Makríllinn sjálfur er góður en gangurinn í veiðunum er skrykkjóttur á köflum. Það hefur komið fyrir að vaktir hjá okkur hafa dottið út vegna hráefnisskorts,“ segir Sindri.
Þar segir jafnframt frá því að makríllinn veiðist núna úti fyrir Snæfellsnesi og jafnvel enn norðar.
„Hingað til höfum við yfirleitt veitt við Eyjar fyrir þjóðhátíð en makríllinn hefur svo verið genginn vestar að þjóðhátíðarstoppi loknu. Svona gengur þetta hins vegar fyrir sig í ár,“ segir Sindri.
Eftirfarandi niðurstaða er dregin af þessum orðum Sindra, og ljóst að Eyjamenn eru komnir í þjóðhátíðarskap:
„Það var og. Makríllinn hefur tekið þjóðhátíðina sem hegðunarviðmið ekki síður en sjálfir Eyjamennirnir sem veiða hann og frysta! Dottið er nú á þjóðhátíðarlogn í flota og landvinnslu VSV. Síðasti vinnudagur var í gær og sá næsti að líkindum ekki fyrr en á fimmtudaginn í næstu viku. Menn hlupu nánast frá færiböndunum upp í Herjólfsdal í gær til að ná í stæði fyrir þjóðhátíðartjöldin sín. Svo byrjaði djammið og við gerum ráð fyrir að það fari vika í hátíðarhöldin og að jafna sig í framhaldinu.“