Makríllin hefur gengið hratt í vesturátt og veiðist nú rétt við mörk íslensku lögsögunnar. Síldarvinnslan hf. greinir frá þessu og segir fiskinn vera stóran og fallegan. Minnt er á að í byrjun mánaðarins var makríllinn að veiðast 650 mílur frá landinu þannig að veiðisvæðið hefur færst nær sem nemur 400 mílum.

Beitir NK kom til Neskaupstaðar með rúmlega 1.000 tonn á laugardag og Barði NK kom með 1.220 tonn á sunnudaginn. Bjarni Ólafsson AK hélt til Færeyja með 900 tonn um helgina. Þá er Börkur NK á landleið til Neskaupstaðar með um 1.600 tonn.

„Það er mokveiði núna um það bil 240 mílur frá landi. Þegar við kláruðum okkar síðasta hol átti fiskurinn einungis 13 mílur eftir að íslensku línunni en hann fer 3-4 mílur á klukkustund. Í síðasta holinu fengum við 310 tonn eftir að hafa dregið í fimm og hálfan tíma. Makríllinn sem veiðist núna er stór og fallegur. Þetta er 520-530 gramma fiskur en í honum er dálítil áta. Það þarf svolítið að hafa fyrir því að ná makrílnum þarna því hann er mjög styggur, einkum á daginn,“ segir Ólafur Gunnar Guðnason, stýrimaður á Berki, í spjalli við tíðindavef Síldarvinnslunnar.