Færaveiðar smábáta á makríl eru að skríða af stað. Heimilt var að hefja veiðarnar 1. júlí og eru 15 bátar byrjaðir og hafa landað alls 44 tonnum, að því er fram kemur á vef LS.
Mestu hefur verið landað í Keflavík 23 tonnum, á Rifi eru komin 7 tonn á land, Arnarstapa 6 tonn og Grindavík 5 tonn. Á öðrum stöðum sem landað hefur verið eru - Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn, Akranes og Ólafsvík.
Alls hafa verið veidd 12.643 tonn af makríl það sem af er vertíðinni.