Fyrir og yfir helgina var bræla á Austfjarðamiðum og þegar hún gekk niður reyndist erfitt fyrir uppsjávarveiðiskipin að finna makríl á miðunum þar eystra.

Frá þessu greinir á heimasíðu Síldarvinnslunnar en eitt af skipum fyrirtækisins, Beitir NK, snéri sér vegna þessa að síldinni og kom í nótt til Neskaupstaðar með góðan afla – 440 tonn.

Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, segir í frétt Síldarvinnslunnar að um sé að ræða stóra og fallega norsk-íslenska síld. „Við fengum síldina innarlega í Norðfjarðardýpinu og á landleiðinni sáum við nokkrar afar fallegar síldartorfur nær landi. Það virðist vera töluvert af síld á þessum slóðum,“ segir Tómas.

Hann segir jafnframt að eftir brælur hverfi makríllinn stundum og hafi það líka gerst á síðustu vertíð. Síðan jafni þetta sig og ágæt makrílveiði hafi til dæmis verið um 60 mílur út af Norðfjarðarhorni í gærkvöldi.

Vegna þess hve erfiðlega gekk að finna makrílinn eystra hélt Bjarni Ólafsson AK til veiða vestur fyrir land. Hann er nú á leið til heimahafnar í Neskaupstað með rúmlega 400 tonn af makríl sem fékkst í tveimur holum á Jökulbanka í Faxaflóa.