Síðustu tvo til þrjá sólarhringa hefur nánast engin makrílveiði verið fyrir austan land. Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar en makríllinn hefur verið á hraðri austurleið að undanförnu og er Beitir NK núna við veiðar í Smugunni, þangað sem eltingarleikurinn við makrílinn endaði.
Bjarni Ólafsson AK hefur hins vegar snúið sér að síldveiðum á Austfjarðamiðum eftir að hafa leitað þar að makríl án árangurs.
Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Gísla Runólfssonar, skipstjóra á Bjarna Ólafssyni, í morgun og innti hann frétta.
Í fréttinni segir: „Hér er engan makríl að hafa eins og er enda hefur hann verið á hraðri austurleið að undanförnu. Þessi fiskur fer svo hratt yfir að það er með ólíkindum, en það á ábyggilega eftir að koma meiri makríll að vestan, spurningin er bara hvenær. Í hitteðfyrra vorum við að veiða makríl í Smugunni á þessum árstíma þannig að þetta á ekkert að koma mönnum mikið á óvart. Við snerum okkur að síldinni í bili og hér er töluvert af síld á grunnunum. Við erum komnir með hátt í 600 tonn í tveimur holum og erum að fara að hífa hér í Seyðisfjarðardýpinu. Ég reikna með að við verðum í Neskaupstað í dag,“ segir Gísli.