Útflutningsverðmæti makríls á fyrstu 11 mánuðum sl. árs nam alls 21,6 milljörðum sem er um 1,9 milljörðum meira en á sama tímabili 2013. Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda.
Meðalverð hefur lækkað um 5% á milli ára sem er minna en búast mátti við þegar horft er til efnahagsástands á okkar stærsta markaði Rússlandi. Hlutdeild Rússa í heildarmagni útflutningsins er nú 31% en var 38% á árinu 2013.
Heildarmagn útflutnings á tímabilinu losar 119 þús. tonn sem er 15% aukning frá 2013.