Um síðustu helgi setti norska uppsjávarskipið Selvåg Senior met í aflaverðmæti þegar það seldi 850 tonn af ferskum makríl fyrir meira en 11 milljónir norskra króna, jafnvirði rösklega 230 milljóna íslenskra króna.
Haft er eftir Audun Sörheim skipstjóra á vef norska síldarsölusamlagsins ( sildelaget.no ) að makríllinn hafi veiðst í lögsögu Evrópusambandsins síðdegis á laugardag.
,,Það var mikill makríll á svæðinu og því erfitt að reikna út hve mikið kom í veiðarfærið,” sagði skipstjórinn.