Skoskir sjávarútvegsmenn eru sagðir mjög óþolinmóðir og telja að nú þurfi ESB að taka sig til og samþykkja viðskiptaþvinganir gagnvart Færeyjum og Íslandi vegna makríldeilunnar.
,,Það veldur miklum vonbrigðum að ESB skuli draga lappirnar í þessu máli,“ segir Ian Gatt talsmaður samtaka eigenda skoskra uppsjávarskipa í fréttatilkynningu. ,,Við höfum trú á því að viðskiptaþvinganir muni fá Ísland og Færeyjar aftur að samningaborðinu þannig að hægt sé að komast að réttlátu samkomulagi.“
Frá þessu er skýrt á vef norskra útvegsmanna.