Á sameiginlegri heimasíðu veitingahúsa í Svíþjóð, Professional Secret, er fólk nú hvatt til að gæða sér á íslenskum gullkarfa. Bent er á að veiðar Íslendinga á gullkarfa séu einu karfaveiðar veraldar sem hafi hlotið vottun Marine Stewardship Council (MSC). Gísli Gíslason, þróunarstjóri MSC hér á landi, segir tíðindin ánægjuleg. „Mér finnst þessi tilkynning jákvæð því þarna er bent á íslenskan uppruna vörunnar og vottunina og síðast en ekki síst hvatt til fiskneyslu.”

Fræðast má nánar um málið á síðu Professional Secret.

Þá má einnig nefna að veiðar Íslendinga á gullkarfa hafa einnig hlotið vottun  Iceland Responsible Fisheries.

Vakin er athygli á þessu á vef SFS