Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við varúðarsjónarmið, að afli rækju í Arnarfirði fiskveiðiárið 2022/2023 verði ekki meira en 242 tonn og að afli rækju í Ísafjarðardjúpi verði ekki meiri en 523 tonn. Þetta er nokkur aukning í Arnarfirði frá fiskveiðiárinu 2021/2022 þegar úthlutað aflamark var 149 tonn og engin veiði var í Ísafjarðardjúpi. Hér er hlekkur á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir Arnarfjörð og hér fyrir Ísafjarðardjúp.

Stofnvísitala rækju í Arnarfirði hækkaði árið 2022 og var svipuð og á árunum 2013-2015. Mikið var af ýsu á svæðinu en árin 2020-2022 voru vísitölur ýsu þær hæstu frá árinu 2011. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Arnarfirði, má finna í tækniskjali.

Stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi var svipuð og árin 2018-2020 og var yfir viðmiðunarmörkum. Vísitölur ýsu hafa verið háar frá árinu 2004.