Landssamband smábátaeigenda (LS) fundaði með Steingrími J. Sigfússyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sl. mánudag til þess að segja álit sitt á tillögum Hafrannsóknastofnunar  um heildarafla á næsta fiskveiðiári.

LS leggur til 230 þús. tonna þorskkvóta í stað 196.000 tonna ráðgjafar Hafró. LS benti á að yrði farið að tillögum Hafró varðandi þorskinn væri allt útlit fyrir að aðeins yrðu veidd 16% af áætluðum veiðistofni hans á næsta ári.

,,Hlutfallið hefur farið minnkandi ár frá ári, þegar litið er til endanlegrar mælingar á veiðistofni. Árið 2011 var hlutfallið 18% og allt stefnir í að það verði 17% á þessu ári. Aflaregla sem stjórnvöld hafa farið eftir, og LS hefur rækilega verið minnt á að ekki verði vikið frá, hljóðar hins vegar í stórum dráttum upp á 20%.

Þegar litið er til þessara þátta þykir LS einsýnt að ráðherra ákveði heildarafla í þorski á næsta ári a.m.k. 230 þús. tonn,“ segir í frétt á vef LS.

Þá leggur LS til 50.000 tonna ýsukvóta í stað 32.000 tonna í veiðiráðgjöf Hafró og 12.000 tonna steinbítskvóta samanborið við 7.500 tonn í tillögum Hafró.