Eftir víðtæka leit hefur loðnan í Barentshafi fundist á ný, en eftir að hlé varð á veiðunum fyrir meira en hálfum mánuð vegna deilu um loðnuverð gekk illa að hafa upp á loðnunni aftur. Norðmenn þurfa að sækja loðnuna 180 mílur inn í rússnesku lögsöguna.
Þrjú skip, Mögsterhav, Talbor og Libas, hafa tilkynnt á milli 750 og 1000 tonna afla hvert og fleiri skip eru á veiðum.
Samkvæmt upplýsingum talsmanns norska síldarsamlagsins eru 20-30 norsk skip á leiðinni á miðin. Hann segir líklegt að loðnan muni færa sig suður á bóginn í átt að Kolaskaga og svo þaðan í vesturátt. Fiskeribladet/Fiskaren skýrir frá þessu.