Bráðabirgðamat liggur nú fyrir frá mælingum á stærð loðnustofnsins í janúar. Stærð hrygningarstofnsins samkvæmt þessum mælingum var um 64.000 tonn. Það er langt undir þeim mörkum í gildandi aflareglu sem þarf að ná svo Hafrannsóknastofnun geti ráðlagt veiðar.

Matið byggir á mælingum þriggja skipa, RS Árna Friðrikssonar, ásamt loðnuskipunum Hákoni EA-148 og Polar Amaroq.

Þrátt fyrir erfiðar veðuraðstæður náðist með samstilltu átaki þriggja mæliskipa og tveggja leitarskipa, heildaryfirferð frá Hvalbakshalla fyrir suðaustan land og þaðan norður um og suður fyrir Víkurál út af Vestfjörðum. Hafís hindraði mjög yfirferð í Grænlandssundi.

Laugardaginn 1. febrúar var byrjað á að ná mælingu á stofninum öðru sinni. Polar Amaroq byrjaði þá yfirferð suðaustur af landinu og mun Aðalsteinn Jónsson SU-011 koma inn í þær mælingar fyrir austan þriðjudaginn 4. febrúar.

RS Árni Friðriksson mun halda til mælinga 3. febrúar vestur fyrir land og mæla til móts við hin skipin. Gert er ráð fyrir að þessar mælingar geti staðið yfir fram í a.m.k. miðjan mánuðinn.