,,Hlutdeild HB Granda í heildaraflamarki Íslendinga á loðnu nemur 18,6% og verði farið eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar þá mun loðnukvóti skipa félagsins losa 100 þúsund tonn á yfirstandandi vertíð," segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda á vef fyrirtækisins .

Að hans sögn hafa verið miklar sveiflur í loðnuveiðunum undanfarin ár. Þegar gengið var frá samruna Granda hf., HB hf., og Tanga hf. undir merkjum HB Granda, var loðnukvóti hins sameinaða félags veturinn á eftir (2004/05) um 140 þúsund tonn og aflinn um 121 þúsund tonn. Fjórum árum síðar var loðnukvótinn kominn niður í rúm 3.000 tonn (veturinn 2008/09) en síðan hefur leiðin legið upp á við að nýju.

,,Tíðarfar og göngumynstur loðnunnar mun nú ráða mestu um árangurinn á vertíðinni en það skiptir ekki síður máli að nú liggur fyrir að veiðar hafa ekki gengið of nærri stofninum, heldur hefur hann verið skynsamlega nýttur og fengið færi til að vaxa upp úr þeirri lægð sem hann hefur verið í undanfarin ár," segir Vilhjálmur en samkvæmt upplýsingum hans eru markaðir fyrir loðnuafurðir almennt góðir. Verð fyrir mjöl og lýsi hefur verið hátt og viðunandi verð hefur fengist fyrir frystar afurðir.

Sem kunnugt er hefur Hafrannsóknastofnun ráðlagt 765 þús. tonna heildarloðnukvóta á vertíðinni og samkvæmt því er talið að um 590 þús. tonn muni koma í hlut Íslands. Öruggt má telja að sjávarútvegsráðherra fari að ráðgjöf Hafró.