Heimaey VE er þessa stundina að landa fyrsta loðnufarmi ársins á Þórshöfn, að því er fram kemur á vef Eyjafrétta. Samkvæmt upplýsingum Vignis Svafarssonar, vélstjóra um borð, er farmurinn 700 m3 af stórri og fallegri loðnu sem fékkst öll í einu hali.
Fjöldi skipa er nú á loðnumiðunum sem eru norðaustur af Langanesi.