Sú ákvörðun sjávarútvegsráðherra að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju á komandi fiskveiðiári er ólögleg samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið hefur verið fyrir Landssamband íslenskra útvegsmanna og ráðuneytinu hefur verið kynnt.
Í álitinu segir m.a. að ákvörðun ráðherra „ ... stenst ekki lög um stjórn fiskveiða og er því ólögmæt og ógildanleg."
Þegar fiskveiðiárinu 2009/2010 lauk í gær hafði allur 7.000 tonna rækjukvótinn veiðst. Í frétt frá LÍÚ er sagt rétt að halda því til haga að ákvörðun ráðherra um að gefa ekki út aflamark byggist á því að veiðar á rækju hafi á undanförnum árum verið undir leyfilegum heildarafla.
Útvegsmenn hafi bent á að á þessu séu eðlilegar skýringar. Hrun í afla á sóknareiningu og lækkun á afurðaverði samfara hækkandi olíuverði, sem rúmlega tvöfaldaðist á árunum 2004-2008, hafi orðið til þess að veiðar hafi ekki borið sig.
Í lögfræðiálitinu segir um þetta: „Er minnt á bráðabirgðaákvæði laganna um fiskveiðistjórnun sem aftengt hafa veiðiskyldu á úthafsrækju vegna erfiðleika í greininni. Svo virðist sem auk annars sé algjörlega horft framhjá þessum staðreyndum við ákvarðanatöku ráðherra."
Í álitinu segir einnig að „ ... veigamikil og málefnaleg rök þurfi til að ráðherra sé heimilt að líta framhjá tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar og á það sérstaklega við þar sem tillaga stofnunarinnar var algjörlega hunsuð í því tilviki sem hér er til skoðunar."