Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afhenti nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Noirmoutier á vesturströnd Frakklands. Að útgerðinni stendur Joël Penisson, sjómaður frá Noirmoutier sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.
Nýi báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 33, hefur hlotið nafnið “Petite Sirene” (Litla hafmeyjan). Báturinn er 11 brúttótonn. Aðalvél hans er af gerðinni Baudouin 6W126 tengd ZF325IV gír. Siglingatæki eru frá Furuno. Báturinn er útbúinn til gildru- og netaveiða. Öryggisbúnaður er frá Viking.
Rými er fyrir 12 stk. 380 lítra kör í einangraðri lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp. Báturinn verður gerður út frá Noirmoutier allt árið, 2-3 menn verða í áhöfn.