Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, lönduðu bæði í Grindavík nú í byrjun vikunnar. Um þessar mundir leggja skipin áherslu á keiluveiði. Páll Jónsson var í stuttum túr en slíkur túr er gjarnan nefndur stubbur. Jónas Ingi Sigurðsson skipstjóri sagði að um hefði verið að ræða fjögurra lagna stubb. Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
„Við fengum 70 tonn í túrnum og það var mest keila og langa, en dálítið af þorski og ýsu með. Við vorum að veiðum á Selvogsbankanum og úti á Tánni. Strax að löndun lokinni var haldið austur á Ingólfshöfða og þar er haldið áfram að reyna við keiluna,” sagði Jónas Ingi.
Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var sáttur við veiðiferðina en landað var 105 tonnum í gær.
„Við byrjuðum í Reynisdýpinu og lögðum þar fjórum sinnum, síðan var ein lögn á Hofshrauni og loks endað við Surt. Það var slæmt veður í upphafi túrs en það lagaðist fljótlega. Túrinn heppnaðist nokkuð vel en staðreyndin er samt sú að það er heldur erfitt að ná keilunni. Jafnvel á hefðbundinni keiluslóð virðist ekki vera mikið um hana og við erum alltaf að fá allmikið af löngu í bland. Það verður haldið á ný til veiða fljótlega eftir að löndun lýkur,” sagði Óli Björn.
Togskipið Jóhanna Gísladóttir hefur landað tvisvar í Grindavík á síðustu dögum eftir mjög stuttar veiðiferðir. Fyrri löndunin var á föstudag og sú síðari á mánudag.