Fjórir íslenskir togarar eru komnir á úthafskarfamiðin á Reykjaneshrygg og tveir á leiðinni þangað, samkvæmt upplýsingum sem Fiskifréttir fengu hjá Landhelgisgæslunni í morgun.
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, fór nýverið í eftirlits- og gæsluflug þar sem könnuð var skipaumferð á SV djúpi og Reykjaneshrygg. Í fluginu kom í ljós að á Reykjaneshrygg voru átján togarar frá aðildarlöndum Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins - NEAFC, frá Rússlandi, Spáni og Þýskalandi. Voru þar fimmtán rússneskir togarar, flestallir þétt við mörk íslensku efnahagslögsögunnar í hálfgerðum línudansi, tveir spænskir togarar sunnan við Rússana og eitt þýskt eftirlitsskip austan við Spánverjana.
Veiðar aðildarlanda NEAFC á Reykjaneshrygg byggjast á samkomulagi sem var gert í Reykjavík í mars 2011 um stjórnun árin 2011-2014. Samkvæmt því eru veiðar heimilar frá 10. maí og þá aðeins á svæði (RCA) þar sem neðri stofninn veiðist en veiðar úr efri stofni utan við svæðið eru ekki leyfðar.
Aðilar að samkomulaginu eru Ísland, Danmörk fyrir hönd Færeyja og Grænlands, Evrópusambandið og Noregur en Rússar mótmæla og eru því óbundnir af stjórnuninni og setja sér einhliða kvóta upp á 29.480 tonn.
Leyfilegur heildarafli í samkomulaginu er eftirfarandi:
2011- 38000 tonn
2012- 32.000 tonn
2013- 26.000 tonn
2014- 20.000 tonn
Kvótar 2012
Ísland 9.926 tonn, Noregur 1.232 tonn, Evrópusambandið 4.944 tonn, Færeyjar 2.154 tonn, Grænland 7.120. Sem fyrr segir mótmæltu Rússar og eru þeir því óbundnir af stjórnuninni og setja sér einhliða kvóta upp á 29.480 tonn.
Frá þessu er skýrt á vef Landhelgisgæslunnar.