Börkur NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1030 tonn af síld. Síldarvinnslan segir frá þessu og bætir við að líklega sé þetta síðasti síldafarmurinn sem tekinn verður til manneldisvinnslu í fiskiðjuveri fyrirtækisins í ár. Að sögn Hjörvars Hjálmarssonar skipstjóra er þarna um 270 gramma síld að ræða og liti hún ágætlega út.
„Við fengum þessa síld í fjórum holum í Kolluálnum. Í hverju holi var togað í 4-6 tíma. Það var bölvuð ótíð alla veiðiferðina og við enduðum hana í 30 metra vindi. Nú fara menn að hugsa um annað en síld. Það á eftir að veiða einhvern svolítinn kolmunna núna í lok ársins hjá fyrirtækinu en nú er mest hugsað um loðnuna. Við erum bjartsýnir hvað varðar aukinn loðnukvóta. Það hefur verið góð fylgni á milli ungloðnumælinga og kvóta og mælingarnar eiga að gefa tilefni til bjartsýni hvað varðar kvótaaukningu. Það hlýtur að finnast meiri loðna við frekari leit,“ hefur Síldarvinnslan eftir Hjörvari.