„Það er barningur í þessari grálúðu eins og vanalega,“ segir Stefán Sigurðsson, skipstjóri á Guðmundi í Nesi RE, sem er nú við veiðar úti af Vestfjörðum.
Áhöfnin á Guðmundi í Nesi hélt til veiða daginn eftir sjómannadaginn og Stefán segir gert ráð fyrir að vera í höfn að nýju 1. júlí.
„Það koma einhverjir dagar sem eru skárri en aðrir en svo er það bara hundlélegt þess á milli. Þetta er ekki það mikið magn á ferðinni finnst manni,“ heldur Stefán áfram um aflabrögðin.
Nýliðun aukist töluvert árið 2022 og verið há síðan
Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir grálúðu hækkar að þessu sinni um 17 prósent milli ára, upp í 20.992 tonn.
„Ráðlagt aflamark er hærra vegna aukningar á heildarstofnstærð. Útlit er fyrir að stofninn fari vaxandi á næstu árum vegna góðrar nýliðunar,“ segir Hafrannsóknastofnun. Nýliðun hafi verið lág síðastliðna áratugi en aukist töluvert árið 2022 og verið há síðan.
Stefán kveðst ekkert vilja tjá sig um þessa ráðgjöf en bendir aðeins á að heildarkvótinn í grálúðu hafi ekki náðst í mörg ár.
Fáir stunda grálúðuna
„Það verða aðrir að svara þessu,“ segir Stefán. „Þetta er svipað með grálúðukvótann og ufsakvótann að hann hefur ekki náðst í mörg ár við Ísland. Það eru ekki svo margir sem stunda grálúðuveiðar, sumir koma ekkert nálægt þessu.“
Samkvæmt nýjustu tölum frá Fiskistofu er Kristrún RE frá Fiskkaupum aflahæst það sem af er í grálúðunni með 2.210 tonn. Guðmundur í Nesi er kominn með 2.018 tonn og Snæfell EA með 1.505 tonn. Önnur skip eru undir eitt þúsund tonnum.
Ekkert sumarhlé verður gert í grálúðunni heldur veitt út kvótaárið „Það hefur ekki verið gert hlé undanfarin ár,“ segir Stefán Sigurðsson.