Áhöfn björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Bjargar á Rifi, var í dag kölluð út klukkan tíu mínútur fyrir tvö, vegna strandveiðibáts sem leki hafði komið að. Báturinn var þá staddur rétt vestur af Snæfellsnesi, utan við Öndverðanesvita.

Þyrla frá Landhelgisgæslunni var einnig kölluð út. Nærstaddir bátar komu skipverjanum til aðstoðar, og var hægt að dæla sjó úr bátnum og komast að mestu í veg fyrir lekann. Þá var aðstoð þyrlu afturkölluð.

Björgunarskipið Björg kom svo að bátnum skömmu síðar, og rétt fyrir klukkan þrjú, var hann kominn í tog og Björg lagði af stað, áleiðis til hafnar á Rifi.

Ekki er ljóst hvers vegna leki kom að bátnum, og skipverjann sakaði ekki.