Grásleppuveiðar hófust á öllum svæðum 20. mars sl. nema í innanverðum Breiðafirði þar sem veiðin hefst að venju 20. maí. Á vef Landssambands smábátasjómanna segir frá því að búið er að virkja 96 leyfi á móti 84 leyfum á sama tíma 2018. Aflabrögð hafa verið heldur slakari og nemur samdrátturinn um 30% í afla hvern veiðidag.
Þar segir jafnframt að grásleppunefnd LS hefur fundað um horfur á yfirstandandi vertíð og dagafjölda vertíðarinnar. Á fundinum var ákveðið að leggja til við sjávarútvegsráðuneytið að veiðidagarnir verði 44, sem er sami dagafjöldi og var á síðustu vertíð.
Til grundvallar niðurstöðu nefndarinnar eru aflatölur og þróun síðustu vertíða skoðaðar í samhengi við upphaf yfirstandandi vertíðar og ráðgjöf, með það að markmiði að veiðin verði sem næst ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Lagt hefur verið til að grásleppuafli fari ekki umfram 4.805 tonn, sem er um 14% minnkun milli ára.