LAXEY, sem byggir upp félag með allt að 36.000 tonna (HOG) ársframleiðslu á laxi í landeldi í Vestmannaeyjum, lauk í síðustu viku 5 milljarða hlutafjáraukningu, sem nemur um 35 milljónum evra. Þessi áfangi markar mikilvægt skref í átt að byggja upp ársframleiðslu félagsins í 10.000 tonn á hágæða landeldislaxi (HOG).

Samhliða hlutafjáraukningunni hefur LAXEY gert langtímasamkomulag við Arion banka sem felur bæði í sér endurfjármögnun og stækkun á lánalínum vegna fyrsta áfanga, sem og nýja fjármögnun til að styðja við uppbyggingu annars áfanga. Heildarfjármögnun sem tryggð hefur verið með þessari blönduðu hlutafjár- og lánsfjármögnun nú, nemur alls 19 milljörðum króna (130 milljónir evra), sem endurspeglar mikið traust fagfjárfesta á framtíðarsýn félagsins. LAXEY hefur frá stofnun safnað yfir 17 milljörðum króna í hlutafé.

Hlutafjáraukningin vegna áfanga tvö var borin uppi af núverandi hluthöfum, en öflugir nýir fjárfestar komu einnig að verkefninu. LAXEY hefur á að skipa mjög fjölbreyttum og reynslumiklum hluthafahóp, sem samanstendur af bæði erlendum og innlendum fjárfestum og er fjölskylda Sigurjóns Óskarssonar í Vestmannaeyjum áfram leiðandi fjárfestir í félaginu. Þá er um 20% hlutur er í eigu innlendra og erlendra aðila með mikla reynslu í fiskeldi sem spannar alla virðiskeðju laxeldis – frá fóðri til sölu og markaðsstarfs.

Framkvæmdir á áætlun – Seiðastöð í fullum rekstri og áframeldi hafið

Uppbygging LAXEY heldur áfram samkvæmt upphaflegri framkvæmdaáætlun og er nú fyrsti áfangi áframeldis á lokametrunum. Seiðastöðin, sem var fullbúin í ágúst 2024, er nú í fullum rekstri og hefur framleiðsla farið afar vel af stað. Fimm hópar hrogna hafa nú þegar verið teknir inn og þroskast í samræmi við áætlanir. Framleiðslugeta stöðvarinnar er allt að 4,6 milljónir seiða á ári.

Í áframeldi eru framkvæmdir við fyrsta áfanga á lokastigi og undirbúningur fyrir næsta áfanga þegar hafinn. Tveir hópar seiða hafa verið fluttir frá seiðastöðinni til áframeldis og var fyrsta 5.000 rúmmetra fiskeldiskerið tekið í notkun í apríl. Annað ker verður tekið í rekstur á næstu dögum, en alls eru átta slík ker í hverjum áfanga. Þetta skref markar einn stærsta áfanga verkefnisins til þessa og staðfestir að hönnun og framkvæmd virki eins og til var ætlast.

Undirbúningur er einnig hafinn fyrir slátur- og vinnsluaðstöðu, þar sem stefnt er að fyrstu slátrun haustið 2025, í samræmi við upphaflega tímalínu. LAXEY hefur þegar undirritað samninga um tæknibúnað og við samstarfsaðila sem tryggja áreiðanlega og vandaða vinnslu frá fyrsta degi.

Viðskiptaáherslur og nýting seiðaframleiðslu

Auk framleiðslu á laxi til manneldis mun LAXEY nýta hluta af framleiðslugetu sinni til ræktunar stórseiða sem seld verða til annarra laxeldisfyrirtækja. Með þessari blönduðu nálgun næst meiri sveigjanleiki í rekstri og möguleikar á tekjum áður en matfiskframleiðsla nær hámarki. Sala á stórseiðum til annarra laxeldisfélaga getur dregið úr lúsavandamálum með því að stytta eldistíma í sjó og styrkt rekstraröryggi viðskiptavina.

Stækkun verkefnis og uppfærð framleiðslugeta

Upphaflega var verkefnið hannað með heildarframleiðslugetu upp á 27.000 tonn (HOG), en með bættri nýtingu á tækjum og tankaplássi, innleiðingu á auknu magni stórseiða og viðbót við eldisaðstöðu hefur áætluð heildarframleiðsla nú verið stækkuð í 36.000 (HOG) tonn á ári. Þessi breyting byggir á þeirri þekkingu sem safnast hefur upp í fyrstu framkvæmdum, ásamt betri tæknilegri útfærslu.

LAXEY verkefnið skapar bæði störf og varanlega verðmætasköpun í Vestmannaeyjum, samfélagi með djúpar rætur í sjávarútvegi og matvælaframleiðslu.

„Við finnum fyrir miklum áhuga og áframhaldandi trausti til verkefnisins, bæði frá núverandi og nýjum fjárfestum,“ segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður LAXEY. „Það er skýr vísbending um að framtíðarsýn okkar – sjálfbært og fjárhagslega sterkt landeldi – eigi fullt erindi bæði í íslenskan sjávarútveg og á alþjóðamarkaði. Sá árangur sem þegar hefur náðst, þar á meðal möguleikinn á tekjumyndun snemma í ferlinu með sölu á stórseiðum, ásamt þeim áhuga sem við finnum frá fjárfestum, staðfestir að við erum á réttri leið.“

Arion banki var umsjónaraðili hlutafjárútboðsins, en Mar Advisors fjármálaráðgjafar fyrir LAXEY.