Nú er landvinnsla í botnfiski komin af stað aftur eftir sumarstopp hjá Vinnslustöðinni, Leo Seafood og í Hólmaskeri í Hafnarfirði. Vinnslan hefur farið vel af stað og ágætlega hefur gengið að halda uppi vinnslu, að því er segir á heimasíðu VSV.

Breki, Þórunn Sveinsdóttir og Drangavík voru að veiðum í vikunni, en Kap fer af stað seinni hluta september. Mest áhersla hefur verið á veiðar á karfa og ufsa, afli hefur verið ágætur hjá öllum skipum.

Fóru eftir öllu austurlandinu í leit að ufsa

Breki VE landaði á miðvikudagsmorgun. Að sögn Ríkharðs Magnússonar, sem var með Breka í síðasta túr gekk túrinn mjög rólega. „Við vorum fyrir austan. Fórum eftir öllu austurlandinu að Berufjarðarálnum í leit að ufsa. Fengum eitthvað af honum en að auki vorum við með ýsu og djúpkarfa.” segir Ríkharð en túrinn var sá síðasti á yfirstandandi kvótaári.

„Nú er hægt að fara að veiða fyrir alvöru”

Óskar Þór Kristjánsson, skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur VE segir í samtali við Vinnslustöðvarvefinn að túrinn hafi gengið ágætlega.

„Fyrst var farið austur að leita að ufsa. Við náðum í einhver 22 tonn af ufsa þar.” segir hann og bætir við að það hafi verið lítið að frétta í bakaleiðinni. „Við vorum hérna suður af Eyjum, það var lítið að frétta þar. Svo fórum við í kantinn á Eldeyjarbankann í leit af karfa, en það var lítið að sjá þar. Eftir Eldeyjarbankann fórum við á Fjöllin í leit af karfa og ufsa en þar var lítið að sjá. Því næst fórum við í Skerjadýpi og fengum þar djúpkarfa og í Grindavíkurdýpi náðum við 10 tonnum af karfa í 2 hölum. Við enduðum svo á Selvogsbanka en þar var lítil veiði.”

Spurður um lengd túrsins segir Óskar Þór að hann hafi verið í lengra lagi. „Við vorum í tæpa 8 sólarhringa. Þetta voru miklar keyrslur, um einn og hálfur sólarhringur í keyrslu.”

Þórunn hélt aftur á miðin í gærkvöldi. „Nú er hægt að fara að veiða fyrir alvöru, (ef Sverrir útgerðarstjóri leyfir okkur að veiða eitthvað af þorski.)” segir Óskar Þór og vísar til þess að nýtt kvótaár sé að hefjast nú um mánaðarmót.