Vestmannaey VE hélt til veiða á sunnudagsmorgun eftir langt hlé. Eins og kunnugt er var skipið til viðgerðar í um fjögurra mánaða skeið eftir að eldur kom upp í vélarúmi þess í lok októbermánaðar. Fyrsta veiðiferðin gekk hins vegar að óskum og kom Vestmannaey með fullfermi til heimahafnar í gærmorgun.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra og spurði fyrst hvort ekki væri gott að vera kominn á sjóinn á ný.

„Jú, það er svo sannarlega gott. Við fórum austur á Pétursey og vorum þar í fínni veiði á nóttunni en það var minna yfir daginn. Þarna fékkst góður fiskur; þorskur, ýsa og ufsi. Það tók örlítinn tíma að stilla búnaðinn um borð eftir þetta langa hlé en fljótlega var allt farið að ganga eins og í sögu,“ segir Birgir Þór.

Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey VE, hefur tvisvar landað fullfermi síðustu daga, segir í sömu frétt. Fyrst á laugardag og síðan á mánudag.

Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs-Hugins, segir að ágætlega hafi aflast að undanförnu og menn séu að vonast eftir góðri vertíð. „Þegar skipin eru farin að landa þrisvar í viku þá er komið gott vertíðartempó í þetta,“ segir Arnar.