Varðskipið Þór er nú á leið í átt að flutningaskipinu Lagarfossi sem varð vélarvana um 230 sjómílur suðvestur af Garðskaga í gær.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Eimskip hafði samband við Landhelgisgæsluna um hádegisbil í gær og tilkynnti um bilunina og spurðist fyrir um hvort mögulegt væri að fá varðskipið Þór til að taka Lagarfoss í tog. Áhöfnin á varðskipinu var kölluð út í gærkvöldi þegar ljóst var að viðgerð um borð í Lagarfossi hafði ekki borið árangur. Varðskipið Þór lét úr höfn í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt og búast má við að það verði komið að Lagarfossi að morgni þriðjudags. Taug verður þá komið á milli skipanna og gera má ráð fyrir að drátturinn taki allt að tvo sólarhringa.

Ætla má að að skipin verði komin til hafnar í Reykjavík á gamlársdag.