Fimmtudaginn 11. desember nk. kl. 13.30-15.30 verður haldinn fundur um áhrif nýrrar reglugerðar Evrópusambandsins um merkingar á lagarafurðum og lagareldisafurðum (fishery and aquaculture products). Um er að ræða reglugerð ESB nr. 1379/2013 sem tekur gildi þann 13. des. nk. Fundurinn fer fram á Grand hótel Reykjavík í Sigtúni.
Marie Christine Monfort hjá Marketing Seafood í Frakklandi, sem er sérhæfð í markaðsmálum sjávarafurða, mun halda kynningu og fjalla um:
• Hverjar eru þessar nýju reglur Evrópusambandsins og út á hvað ganga þær?
• Hver eru viðbrögð kaupenda erlendis við þessum nýju reglum? Skv. viðtölum við kaupendur í Frakklandi, Bretlandi, Spáni og Þýskalandi.
• Hvaða áhrif þessar nýju reglur Evrópusambandsins hafa á seljendur sjávarafurða?
Umræður verða í kjölfar fyrirlesturs Marie Christine. Þeir sem eru að framleiða og selja sjávarafurðir eru hvattir til að mæta á fundinn og taka virkan þátt í umræðum og deila sinni reynslu varðandi þessar nýju reglur ESB, segir í frétt á vef Íslandsstofu.
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn á vef Íslandsstofu eða hringja (511-4000). Sjá nánar um málið HÉR