Á morgun hefst nýr kafli í sögu fiskmarkaðarins í Grimsby en áform eru uppi um að breyta honum í einn af nútímalegustu uppboðsmörkuðum í Evrópu, að því er fram kemur í frétt á vefnum fishupdate.com
Frammámenn í fiskiðnaði, að meðtalinni opinberri sendinefnd frá Íslandi, koma saman í höfninni í Grimsby á morgun við formlegt upphaf á framkvæmdunum sem munu kosta alls um 1,2 milljónir punda, eða um 230 milljónir króna íslenskar.
Íslendingar eru helstu birgjar markaðarins í Grimsby og því verður Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra viðstaddur athöfnina og hefja framkvæmdir formlega. Með honum í för verður Benedikt Jónsson, sendiherra Íslands í Bretlandi. Breski sendiherrann á Íslandi, Ian Whitting, verður einnig viðstaddur.