„Kvótinn á Þórshöfn er skertur um 70 prósent þvert á reglugerð 818 frá 2024 og rústar smábátaútgerð héðan,“ segir Björn S. Lárusson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, um úthlutun byggðakvóta.

„Á Bakkafirði er kvótinn skertur um 7 prósent en það var búið að rota Bakkafjörð áður með því að setja grásleppu i kvóta. Þess má geta að Bakkafjörður var fram að síðustu áramótum „Brothætt byggð“ en því verkefni ætlar sveitarfélagið Langanesbyggð að halda áfram,“ segir Björn.

Fámennu byggðarlögin hafi ekki átt að lækka um meira en fimmtán tonn

Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti í gær bókun vegna þessarar úthlutunar á byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárin 2024-2025.

„Sveitarstjórn harmar þær skerðingar sem eru á almenna byggðakvótanum fyrir fiskveiðiárið 2024-2025,“ segir í bókuninni þar sem sagt er að úthlutunin fyrir fiskveiðiárið 2024-2025 brjóti í bága við reglugerð um úthlutun byggðakvóta nr. 818/2024 þar sem segi í 2. gr. E liðar:
„Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A-lið hér að framan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var aflaheimildum á fiskveiðiárinu 2023/2024, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2024/2025, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorskígildistonn, milli fiskveiðiáranna 2023/2024 og 2024/2025“.

Úr 102 tonnum í 32 tonn

Segir sveitarstjórnin að fyrir fiskveiðiárið 2023-2024 hafi Þórshöfn fengið úthlutað 102 þorskígildistonnum en fyrir fiskveiðiárið 2024-2025 sé þessi kvóti skertur niður í 32 tonn sem sé tæplega 70 prósent skerðing.

„Íbúar í byggðarlaginu Þórshöfn eru 345 og því færri en segir í E-lið. Í ljósi þessa fer sveitarstjórn fram á að úthlutun byggðakvóta til Þórshafnar verði leiðréttur og úthlutað samkvæmt reglugerð,“ segir sveitarstjórnin og bætir við:

„Byggðakvóti hefur hjálpað kvótalitlum og kvótalausum útgerðum sem stunda grásleppuveiðar vegna meðalafla við veiðar og eru gott tækifæri fyrir nýliðun í atvinnugreininni og það hjálpar þeim útgerðum sem fyrir eru, með marga starfsmenn að gera út allt árið.“