Sjórinn vestan við landið kraumar víða af makríl þessa dagana. Hans verður meðal annars vart við Akranes og norðurmeð vesturströndinni og á Breiðafirði má víða sjá fláka makríltorfa.
Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns tók meðfylgjandi MYNDBAND á næstsíðasta degi strandveiðanna, síðastliðinn mánudag. Þarna er Álfgeir bróðir hans á sjó, en allt kringum bátinn kraumar sjórinn af makríl, eins og sjóðandi pottur eða hver.