„Það verður ekki annað sagt en að veiðiferðin hafi gengið nokkuð vel,“ segir Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sem kom með fullfermi til heimahafnar á mánudaginn var. Sama dag kom Bergur VE einnig til hafnar með fullfermi.

Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar þar sem einnig er rætt við Jón Valgeirsson, skipstjóra á Bergi.

„Að þessu sinni lögðum við mikla áherslu á ufsa og veður var þokkalegt allan tímann. Við byrjuðum veiðarnar í Reynisdýpinu og síðan var haldið á Kötlugrunn, Síðugrunn, á Ingólfshöfða og í Sláturhúsið,” segir Birgir Þór á svn.is.

Fyrsti túrinn eftir sumarstopp

„Túrinn hjá okkur byrjaði ekkert alltof vel en krapavélin bilaði þegar búið var að taka þrjú hol og þá var haldið í land til að sækja varastykki og landað þeim 30 tonnum sem komin voru um borð. Síðan var haldið á Höfðann og þar fékkst ýsa. Eftir nokkurn tíma þar var straujað austur og þar fengum við vænan og góðan þorsk utan Fótar. Þetta var fyrsti túr skipsins eftir mánaðarlangt sumarstopp,” er síðan haft eftir Jóni Valgeirssyni.