KAPP ehf afhenti Ný-Fisk fyrsta eintakið af nýrri og byltingakenndri krapavél í höfuðstöðvum Ný-Fisks í Sandgerði í gær. Að því er segir í fréttatilkynningu er vélin fyrsta krapavélin með CO2 sem er fjöldaframleidd í heiminum.

Áfram segir að CO2 sé nú í boði fyrir allar OptimICE krapavélar á markaðnum. Vélin sé knúin 100 prósent CO2 kælimiðli. Orkunotkunin sé mun minni með CO2 krapavél heldur en í eldri vélum.

„Öll hönnun, þróun og smíði á vélinni hefur verið hjá KAPP, þar sem allar krapavélar hafa verið framleiddar. Hönnunin var lengi í þróun og unnin í samstarfi við nokkur erlend fyrirtæki, hvert með sérþekkingu á sínu sviði. OptimICE hefur verið selt um allan heim síðan 1999 með miklum árangri og flestar stærstu útgerðir bæði á Íslandi og erlendis eru með OptimICE í skipum sínum og einnig í landvinnslu.

,,OptimICE vélarnar hafa valdið byltingu í kælingu á fiski og kom í stað fyrir hefðbundinn flöguís. Með OptimICE hraðkælingu verður öll vinnuaðstaða mun auðveldari enda er krapinn unninn úr sjó um borð í skipum og einfaldlega sprautað úr slöngu yfir fiskinn," segir Heimir Halldórsson, viðskiptastjóri hjá KAPP.

Krapa sprautað yfir fisk.
Krapa sprautað yfir fisk.

,,Þar sem OptimICE er fljótandi þá umlykur krapinn allan fiskinn og kælir hann rétt undir frostmark á um einni klst. og helst hitastigið þannig allan túrinn. Hraðkælingin umlykur fiskinn, kemur honum hratt niður fyrir 0°C og heldur honum í kringum -0,5 °C allan veiðitúrinn, í löndun, í flutningi þvert í kringum landið og allt til endanlegs viðskiptavinar. Kælikeðjan rofnar því aldrei með OptimICE og fiskurinn helst ferskur í hámarksgæðum allan tímann," segir Heimir. Hann nefnir að kæling með flöguís tekur um fimmtán klst. og nái samt ekki að komast undir 0°C. Hillutíminn lengist með OptimICE kælingu um 5-7 daga. Nýja vélin var kynnt á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í vor og fékk mikla athygli á sýningarbás KAPP þar.

KAPP er með söluskrifstofur erlendis í Noregi, Frakklandi, Englandi, Færeyjum, Bandaríkjunum og Mexikó,“ segir í fréttatilkynningunni.