Á miðvikudaginn í síðustu viku steig Guðjón Guðjónsson skipstjóri frá borði á og kvaddi um leið langan feril á sjónum.
Frá þessu segir á vef FISK Seafood þar sem ferill Guðjóns er rakinn í stórum dráttum og spjallað aðeins við hann sjálfan sem og Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóra útgerðarinnar.
„Okkar ástsæli, og ekki síður farsæli, skipstjóri Guðjón Guðjónsson, sem flestir þekkja væntanlega ekki nema sem Jonna, hoppaði alkominn í land í morgun eftir rúmlega hálfa öld á sjó,“ segir í færslunni sem birt var 29. janúar síðastliðinn.
Skattkortið alltaf á Skagaströnd
Segir áfram að Guðjón hafi á þessum árum gert víðreist um sjóinn en stæri sig af því um leið af því að hafa aldrei flutt skattkortið sitt af Skagaströndinni enda hafi líf hans verið í föstum skorðum alla tíð. Undir það taki eflaust eiginkona hans, Guðrún Soffía Pétursdóttir eða Obba, sem fái nú karlinn sinn loksins heim eftir langt úthald.
„Jú, auðvitað fylgir því ákveðinn söknuður að kveðja góðan vinnustað, trausta skipsfélaga og síðast en ekki síst atvinnugrein sem skiptir samfélagið svo miklu máli og er fyrir vikið endalaust á milli tannanna á fólki,“ er haft eftir Jonna. Vel hafi verið tekið á móti honum á bryggjunni þá um morguninn.
Vonar að vanþekking hafi ekki áhrif á ákvarðanir stjórnvalda
„Auðvitað hlakka ég til aukinna samvista við börnin okkar Obbu og tíu afa- og ömmubörnin sem þau hafa fært okkur. Ég verð núna stoltur eldri borgari sem hefur aldrei þegið bætur af nokkru tagi frá samfélaginu og ætla að standa áfram vörð um sjálfstæði mitt í svoleiðis efnum. Svo fæ ég meiri tíma til þess að pirra mig á allri vitleysunni sem sett er fram í fjölmiðlum um sjávarútveginn. Vonandi mun vanþekkingin sem þar ræður oft ferðinni ekki hafa of mikil áhrif á ákvarðanir stjórnvalda hverju sinni,“ er haft eftir Guðjóni.
Um feril Guðjón segir að hann hafi fengið skipstjórnarréttindi árið 1979 og byrjað strax á dekkinu á Arnari HU-1. „Þar tók hann svo við hlutverki stýrimanns og skipstjóra árið 1982 og gegndi því starfi í áratug. Þaðan lá leiðin í nokkur ár sem skipstjóri yfir á Örvar sem einnig var gerður út frá Skagaströnd og loks í skipstjórastólinn á frystitogaranum Arnari HU-1 árið 1996,“ segir á vef Fisk.
Ósvikin aflakló og mikill leiðtogi
Einnig er rætt við Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóra FISK Seafood, sem kveðst samgleðjast Jonna innilega með tímamótinni og vita að hann sé alveg tilbúinn til þess að koma í land.
„Góður skipstjóri er á vissan hátt framkvæmdastjóri um borð í hverjum túr og þar hefur Jonni verið heiðarlegur, sanngjarn og mikill leiðtogi fyrir utan auðvitað að vera þessi ósvikna aflakló sem við öll þekkjum. Jonni reyndist mér frá fyrsta degi hér hjá FISK Seafood gríðarlega traustur bakhjarl og ég kveð hann með miklum söknuði um leið og ég óska honum góðra tíma í fríinu sem framundan er,“ segir Friðbjörn Ásbjörnsson á fisk.is.