Þegar er búið að veiða þriðjung makrílkvóta fimm skipa sem eru í veiðisamstarfi Síldarvinnslu- og Samherjaskipa. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

„Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað var lokið við að vinna rúm 1.300 tonn úr Barða NK síðastliðna nótt og nú er Beitir kominn með rúm 1.500 tonn og vinnsla úr honum hafin. Vinnslan er fjölbreytt því fiskurinn er ýmist heilfrystur, hausaður eða flakaður,“ segir á svn.is. Þar er rætt við Geir Sigurpál Hlöðversson, rekstrarstjóra fiskiðjuversins.

Myljandi gangur þótt hafa þurfi fyrir hlutunum

„Það er myljandi gangur í þessu og ekki undan neinu að kvarta. Fiskurinn sem við erum nú að vinna úr Beiti er afar góður,” segir Geir Sigurpáll.

Þá víkur að því að nú sé búið að veiða um þriðjung þess kvóta sem Síldarvinnslu- og Samherjaskipin fimm í veiðisamstarfi þeirra hafi til umráða. Veidd hafi verið um 12.400 tonn.

„Vart verður annað sagt en að vertíðin hafi gengið vel þó töluvert þurfi að hafa fyrir veiðunum. Nánast öll veiðin hefur farið fram innan íslenskrar lögsögu sem meðal annars gerir það að verkum að gæði fisksins sem skipin færa að landi eru betri en ef veiðin færi fram á fjarlægari miðum,“ segir á vef Síldarvinnslunnar.