Uppsjávarveiðiskip Síldarvinnslunnar, Barði NK, Beitir NK og Börkur NK, hafa haldið til kolmunnaveiða í færeyskri lögsögu að því er kemur fram á vef fyrirtækisins.
„Kolmunninn fer til mjöl- og lýsisframleiðslu og eru fiskimjölsverksmiðjurnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði tilbúnar að taka á móti hráefni. Gert er ráð fyrir að verksmiðjurnar taki á móti svipuðu magni af kolmunna og í fyrra,“ segir svn.is.
Úthlutaður kvóti til Síldarvinnsluskipanna er 91.500 tonn og auk þess munu verksmiðjurnar taka á móti afla frá öðrum skipum, segir á svn.is. Í fyrra hafi borist 120 þúsund tonn af kolmunna til verksmiðjanna, 64 þúsund tonn til Neskaupstaðar og rúmlega 56 þúsund tonn til Seyðisfjarðar.
Vilja fá afla sem allra fyrst
„Kolmunninn er mjög gott hráefni til mjölvinnslu og hann má fara að koma,“ er haft eftir Hafþóri Eiríkssyni, rekstrarstjóra fiskimjölsverksmiðjanna, sem kveður allt tilbúið til kolmunnavinnslu.
„Hér er allt klárt og við viljum bara fá afla sem fyrst,“ er haft eftir Eggerti Ólafi Einarssyni, verksmiðjustjóra á Seyðisfirði.
Þá kemur fram að samkvæmt fréttum í morgun hafi verið bræla á kolmunnamiðunum og lítið að frétta af aflabrögðum.