Fiskaflinn í aprílmánuði nam alls rúmum 80.000 tonnum  samanborið við tæp 37.000 tonn í sama mánuði í fyrra. Þar munar langmest um aukinn kolmunnaafla.

Botnfiskafli jókst um tæp 3.900 tonn frá apríl 2011 og nam rúmum 35.900 tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 16.100 tonn, sem er aukning um rúm 2.700 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 4.700 tonnum sem er um 600 tonnum minni afli en í apríl 2011. Karfaaflinn jókst um rúm 300 tonn samanborið við apríl 2011 og nam 5.200 tonnum. Um 4.300 tonn veiddust af ufsa sem er 58 tonna aukning frá apríl 2011.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 38.000 tonnum, sem er um 37.000 tonnum meiri afli en í apríl 2011. Nær einungis var landað kolmunna í aprílmánuði, líkt og árið áður.

Flatfiskaflinn var tæp 2.300 tonn í apríl 2012 og jókst um rúm 700 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam um 1.500 tonnum sem var nær sama magn og í apríl 2011.

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum aprílmánuði, metinn á föstu verði, var 33% meiri en í apríl 2011. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 30% miðað við sama tímabil 2011, sé hann metinn á föstu verði.

Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands.