Bjarni Ólafsson AK, skip Síldarvinnslunnar, kom síðastliðna nótt með um 930 tonn af kolmunna til heimahafnar í Neskaupstað og síðdegis kom Börkur NK með rúmlega 1.100 tonn af síld.

Á heimasíðu fyrirtækisins segir Runólfur Runólfsson, skipstjóri á Bjarna, að kolmunnaveiðin sé heldur treg.

„Við vorum að veiðum djúpt út af Norðfjarðardýpi, um 60-70 mílur frá landi. Við vorum fimm daga að veiðum og var aflinn tekinn í fimm holum. Þegar skyggja tekur hverfur kolmunninn alveg og því er látið reka frá klukkan hálf sex síðdegis til klukkan sjö á morgnana og einungis togað á daginn,“ segir Runólfur. Bjarni Ólafsson mun halda til veiða á ný í kvöld að lokinni löndun.

Börkur var að síldveiðum í færeysku lögsögunni og fékk aflann í sjö holum. Ólafur Guðnason stýrimaður segir í sömu frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar að um tíma hafi ekki verið sérstök veiði en heldur hafi ræst úr henni. Aflinn fékkst 90-100 mílur inni í færeysku lögsögunni um 240 mílur frá Norðfirði.