Bjarni Ólafsson AK heldur til kolmunnaveiða í færeyskri lögsögu í dag. Í tilefni af því sló heimasíðan á þráðinn til Runólfs Runólfssonar skipstjóra.
„Við munum halda til veiða í dag en oft hefur veiðin í færeysku lögsögunni verið að byrja um þetta leyti. Færeysk skip hafa að undanförnu verið að fá þarna smáan kolmunna en sá stærri er væntanlega handan við hornið,“ segir Runólfur Runólfsson skipstjóri á Bjarna Ólafssyni AK í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
„Á undanförnum árum hefur veiðin oft verið góð á þessum árstíma en svo var þó ekki í fyrra enda alltaf vitlaust veður. Við gerum ráð fyrir að leggja stund á þessar veiðar fram að jólum eða á meðan kvóti er til staðar. Menn eru bara bjartsýnir á veiðarnar. Það er þó fyrirsjáanlegt að veðrið verður slæmt síðustu daga þessarar viku en síðan mun það ganga niður eins og alltaf,“ segir Runólfur.