Fundi strandríkjanna í kolmunna vegna veiða ársins 2014 var haldinn 11.-12. desember sl. í London.
Enginn árangur var af viðræðum aðila en til næsta fundar verður boðað í janúar næstkomandi,að því er segir á vef atvinnuvegaráðuneytisins.
Í þessari viku var einnig haldinn strandríkjafundur um skiptingu kvóta norsks-íslenskrar síldar og lauk honum einnig án samkomulags, eins og fram hefur komið.