Þór, nýtt fjölnota varðskip Landhelgisgæslunnar, flaut í gær nýmálaður út úr kví ASMAR skipasmíðastöðvarinnar sem er í eigu sjóhersins í Chile. Stórum áfanga er nú náð í smíði skipsins.

Framundan eru sjó- og togprófanir sem standa munu til loka júlímánaðar. Fer Þór að því loknu í flotkví til botnhreinsunar og lokamálunar. Taka þá við hallaprófanir sem eru síðasti verkþáttur í smíðaáætlun skipsins sem áætlað er að afhenda 1. september nk. Stefnt er að því að Þór taki fyrstu höfn á Íslandi 30. september.

Tilkoma Þórs markar tímamót  í eftirlits- og björgunargetu Landhelgisgæslunnar. Mun varðskipið gjörbreyta möguleikum í björgun og aðstoð við skip á hinu víðfeðma hafsvæði sem Ísland ber ábyrgð á jafnt innan sem utan efnahagslögsögunnar, segir á vef Gæslunnar.