Áhöfnin á varðskipinu Freyju fylgdi bandaríska kafbátnum, USS Delaware, um landhelgina og inn í utanverðan Eyjafjörð í dag þar sem þjónusta við kafbátinn fór fram. USS Delaware er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn. Frá þessu segir á heimasíðu Landhelgisgæslunnar.

Þetta var sjötta þjónustuheimsókn kjarnorkuknúins kafbáts bandaríska sjóhersins í íslenska landhelgi eða frá því að utanríkisráðherra tilkynnti 18. apríl 2023 að slíkum kafbátum yrði heimilað að hafa stutta viðkomu úti fyrir ströndum Íslands til að taka kost og skipta út hluta áhafnar.
Liður í varnarskuldbindingum Íslands
Landhelgisgæsla Íslands leiddi framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í samræmi við settar verklagsreglur.
Heimsóknin tókst vel og er þar helst að þakka nánu samstarfi og samráði hlutaðeigandi stofnana innanlands og góðu samstarfi við bandaríska sjóherinn.
Þjónustuheimsóknirnar eru liður í varnarskuldbindingum Íslands og mikilvægt framlag til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins. Framkvæmd þeirra hér við land gerir bandamönnum okkar kleift að tryggja samfellu í eftirliti, stytta viðbragðstíma og senda skilaboð um viðveru og varnir á Norður-Atlantshafi.
Kafbátar bandalagsríkja og kafbátaleitarvélar, sem meðal annars eru gerðar út frá Keflavíkurflugvelli, gegna mikilvægu hlutverki við eftirlit og stöðuvitund á Norður-Atlantshafi og stuðla þannig að auknu öryggi bandalagsríkja, þar á meðal á hafsvæðinu í kringum Ísland.