Arctic Oddi ehf., sem er dótturfélag laxeldisfyrirtækisins Arctic Fish ehf., hefur keypt nýbyggingu Fiskmarkaðs Bolungarvíkur. Fyrirhugað er að koma upp laxasláturhúsi í byggingunni.
Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Arctic Fish.
Þar segir að sláturmál fyrirtækisins hafi verið í skoðun um nokkurt skeið og hafi þar verið horft til þess að nýta stærðarhagkvæmni þess að byggja eitt stórt sláturhús fyrir stærsta hluta þeirrar framleiðslu sem kemur frá Vestfjörðum. Margir staðir hafi verið til skoðunar sem og samstarf við önnur eldisfyrirtæki um þá framkvæmd í nokkrum sveitarfélögum.
„Sú skoðun hefur dregist og ekki er fyrirséð hvenær henni líkur og byggingartími slíkrar framkvæmdar er um tvö ár. Á sama tíma stækkar eldi fyrirtækisins hratt og núverandi sláturgeta er takmörkuð. Það hefur leitt til þess að ekki hefur verið hægt að anna allri eftirspurn eftir slátrun stóran hluta þessa árs. Með aukinni framleiðslu er fyrirséð að þetta verði staðan þar til að sláturgeta á Vestfjörðum hefur verið aukin. Með það í huga þarf félagið að tryggja sér aukið aðgengi að slátrun eins fljótt og auðið er,“ segir í fréttinni.
Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic Fish, segir þar að með því kaupa umrætt húsnæði sem hentar vel fyrir þessa starfsemi og er nánast tilbúið sé mögulegt á tiltölulega stuttum tíma að koma upp sláturhúsi sem annar þeirri framleiðslu sem fram undan er.
„Þrátt fyrir að ákvörðun um fjárfestingu í sláturhúsi liggi ekki fyrir vill félagið tryggja sér húsnæðið með það að markmiði að koma þar upp sláturhúsi sem annar framleiðslu fyrirtækisins“, segir, Stein Ove.