Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 2. september 2013 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum ufsa um 3% .

Jafnframt var ákveðið að hækka viðmiðunarverð á karfa um 5% . Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. september 2013.

Allar verðtöflur